mánudagur, september 13, 2010

Lesbía

Sunna sagði við mig í síðustu viku: Mamma, ég er lesbía
Eva: já, veistu hvað það er?
Sunna: já, þá giftist ég konu.

mánudagur, nóvember 10, 2008

Klósett

Sunna var eitthvað svo spennt að fara inn í herbergið sitt að perla en stoppaði svo og sagðist þurfa pissa fyrst. svo snéri hún sér við og sagði við mig "mamma, mig langar að fá litil klósett inn í herbergin okkar Regins"

sunnudagur, júlí 20, 2008

hin besta skemmtun

Sunna og Reginn voru að leika sér eittvað í dag. Sunna var búin að láta diskamottur á eldhúsgólfið og þau voru að hoppa á milli þeirra. svo heyrist í Sunnu, "Reginn, við höfum nú aldrei skemmt okkur svona vel áður"

fimmtudagur, júní 26, 2008

Hora spori

Sunna sagði með mæðutón um daginn "Ég er með svo mikið hor", svo eftir smá stund sagði hún með uppgjafartón "Ég nenni ekki að vera alltaf að bora í nefið"

þriðjudagur, júní 10, 2008

vitlaust og rétt

Sunna rak sig í áðan, ég var eitthvað að hugga hana og svo sagði hún "ég rak vitlausa beinið í" og benti á vinstri olnbogann. Stuttu seinna sagði Sunna benti svo á hægri olnbogan og sagði við mig "er þetta rétta beinið"

föstudagur, júní 06, 2008

Sunna að vera sannfærandi

Um daginn vorum við að borða og ég var að spyrja Sunnu hvort hún vildi meira. Sunna sagði nei, þar sem mér fannst hún hafa borðað fremur lítið, spurði ég hvort hún vildi ekki smá í viðbót. Sunna svaraði þá "mamma, ég er alveg hundviss"

mánudagur, apríl 21, 2008

Skemmtilegar setningar frá Sunnu

Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Sunna "ég ætla að vinna á tryggó" Ég "já alveg eins og pabbi" Sunna "já..." eftir smá pásu segir Sunna "nei, ég ætla að fá brjóst eins og þú"

Um daginn sagði Sunna "mamma, ég er að hugsa... sko með heilanum"